„Sigurjón Hansson (Hjalla)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigurjón Hansson''' frá Fitjakoti á Kjalarnesi, sjómaður, verkamaður fæddist þar 14. febrúar 1902 og lést 6. maí 1994 í Dvalarheimilinu Seljahlíð.<br> Foreldrar hans voru Hans Gíslason bóndi, f. 26. september 1866, d. 26. júlí 1944, og kona hans Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1867, d. 17. desember 1939. Sigurjón var með foreldrum sínum.<br> Hann hóf sjómennsku á áraskipi frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd og frostaveturinn mikla 1...)
 
m (Verndaði „Sigurjón Hansson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 30. maí 2023 kl. 11:28

Sigurjón Hansson frá Fitjakoti á Kjalarnesi, sjómaður, verkamaður fæddist þar 14. febrúar 1902 og lést 6. maí 1994 í Dvalarheimilinu Seljahlíð.
Foreldrar hans voru Hans Gíslason bóndi, f. 26. september 1866, d. 26. júlí 1944, og kona hans Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1867, d. 17. desember 1939.

Sigurjón var með foreldrum sínum.
Hann hóf sjómennsku á áraskipi frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd og frostaveturinn mikla 1918, þá 16 ára að aldri, gekk hann á ís ofan af Kjalarnesi til verstöðva suður með sjó að leita sér að skiprúmi. Hann stundaði sjósókn í 47 ár, oftast skipstjóri eða stýrimaður, og síðan var hann verkamaður til 81 árs aldurs.
Hann fluttist ungur til Eyja til sjómennsku.
Þau Anna giftu sig 1924, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Hjalla við Vestmannabraut 57, í Haga við Heimagötu 11, á Eyjarhólum við Hásteinsveg 20. Þau fluttu til Reykjavíkur 1946, bjuggu síðast á Brekkustíg 6.
Anna lést 1975.
Sigurjón dvaldi að síðustu í Seljahlíð. Hann lést 1994.

I. Kona Sigurjóns, (17. maí 1924), var Anna Sigríður Scheving frá Steinsstöðum, húsfreyja, f. þar 11. október 1901, d. 30. júlí 1975.
Börn þeirra:
1. Sveinn Scheving Sigurjónsson, f. 19. júní 1924 á Hjalla, d. 17. nóvember 1942 af berklum.
2. Hans Ragnar Sigurjónsson skipstjóri, útgerðarmaður í Reykjavík, f. 16. júní 1927 á Hjalla, d. 30 desember 2013.
3. Anna Hólmfríður Sigurjónsdóttir húsfreyja, verslunar- og skólastarfsmaður, f. 19. febrúar 1930 á Hjalla, d. 29. október 2020.
4. Þráinn Scheving Sigurjónsson endurskoðandi, f. 13. október 1940 á Eyjarhólum. Kona hans Ruth Fjeldsted.
5. Sveinn Scheving Sigurjónsson bifreiðastjóri, f. 25. júlí 1942 Sjh. Kona hans Kristín Björk Pálsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.