Sigurbjörg Axelsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 12:47 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 12:47 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Axelsdóttir fæddist 23. apríl 1935. Árið 1954 kvæntist hún Axel Lárussyni skókaupmanni.

Sigurbjörg var við nám í Kvennaskólanum í Reykjavík 1949-1952. Hún starfaði hjá Siglingamálastofnun og í verslun Ragnars H. Blöndal. Í Vestmannaeyjum rak hún í fjölda ára skóverslunina Axel Ó ásamt manni sínum.

Sigurbjörg var fyrsta konan sem átti sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Þar sat hún frá 1974-1978 og 1982-1986. Auk þess var hún varabæjarfulltrúi 1980-1981.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.