Sigurbjörg Axelsdóttir



Sigurbjörg Axelsdóttir fæddist 23. apríl 1935. Árið 1954 giftist hún Axel Lárussyni skókaupmanni. Sigurbjörg var við nám í Kvennaskólanum í Reykjavík 1949-1952. Hún starfaði hjá Siglingamálastofnun og í verslun Ragnars H. Blöndal. Í Vestmannaeyjum rak hún í fjölda ára skóverslunina Axel Ó ásamt manni sínum.
Sigurbjörg var fyrsta konan sem átti sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Þar sat hún frá 1974-1978 og 1982-1986. Auk þess var hún varabæjarfulltrúi 1980-1981. Sigurbjörg var virk í mögum félögum, var í félagi kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum, og formaður þess í mörg ár, var í stjórn kaupmannasamtaka Íslands og var sæmd gullmerki þess, hún starfaði í Sjálfstæðiskvennafélaginu Eygló, og starfaði mikið fyrir íþróttafélagið Þór í Vestmannaeyjum.
Eftir Sigurbjörgu liggja mörg ljóð og samdi hún meðal annars ljóð við þjóðhátíðarlagið 1972 sem hefst á orðunum: ,,Fegurð friðsæld og kyrrð / finnst hvergi meiri en í Eyjanna byggð".
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.