„Sigríður Jónsdóttir (Jónshúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Sigríður Jónsdóttir (Jónshúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:
Foreldrar hennar voru Jón Árnason bóndi og formaður á Bakka, f. 1772 í Deild í Fljótshlíð, d. 18. febrúar 1841 á Bakka, og kona hans Þorgerður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Skaftártungu í V-Skaftaf.s., d. 9. mars 1859 á Bakka.

Foreldrar hennar voru Jón Árnason bóndi og formaður á Bakka, f. 1772 í Deild í Fljótshlíð, d. 18. febrúar 1841 á Bakka, og kona hans Þorgerður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Skaftártungu í V-Skaftaf.s., d. 9. mars 1859 á Bakka.

Systkini Sigríðar í Eyjum voru:

Systkini Sigríðar í Eyjum voru:

1. [[Árni Jónsson (Vilborgarstöðum)|Árni Jónsson]] bóndi á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], f. 31. janúar 1812, d. 8. janúar 1855.

1. [[Árni Jónsson (Vilborgarstöðum)|Árni Jónsson]] bóndi á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], f. 31. janúar 1812, d. 8. janúar 1855.

Hann var fyrr kvæntur [[Jóhanna Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)]]
Hann var fyrr kvæntur [[Jóhanna Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)]]

Útgáfa síðunnar 21. maí 2014 kl. 11:09

Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Jónshúsi, síðar á Bakka í A-Landsyjum, fæddist 25. september 1817 á Kanastöðum í A-Landeyjum og lést 25. janúar 1907 í Víðinesi á Kjalarnesi.
Foreldrar hennar voru Jón Árnason bóndi og formaður á Bakka, f. 1772 í Deild í Fljótshlíð, d. 18. febrúar 1841 á Bakka, og kona hans Þorgerður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Skaftártungu í V-Skaftaf.s., d. 9. mars 1859 á Bakka.

Systkini Sigríðar í Eyjum voru:
1. Árni Jónsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 31. janúar 1812, d. 8. janúar 1855.
Hann var fyrr kvæntur Jóhanna Jónsdóttir (Vilborgarstöðum) Jóhönnu Jónsdóttur húsfreyju á Vilborgarstöðum. Síðar var hann fyrri maður Bjargar Árnadóttur húsfreyju á Vilborgarstöðum.
2. Loftur Jónsson formaður, bóndi, smiður og mormónatrúboði í Þorlaugargerði, síðar í Utah, f. 20. júlí 1814, d. 9. september 1874. Fyrri kona hans var Guðrún Hallsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði, en síðari kona Lofts var Halldóra Árnadóttir frá Godthhab.

Sigríður var vinnukona í Sjólyst hjá Ásdísi Jónsdóttur húsfreyju og Anders Asmundsen skipstjóra 1840, og þar var hún, er hún eignaðist Árna 1841.
Þau Árni giftu sig í maí 1841 og voru komin í Tómthús, sem þá nefndist Jónshús 1842.
Þau misstu Guðnýju nýfædda úr ginklofa 1844.
1845 var hún í Jónshúsi með Jóni og börnunum Árna 5 ára og Oddi 4 ára.
Þau fluttust að Bakka í A- Landeyjum 1847 með synina Árna 7 ára, Odd 6 ára og Jón eins árs. Á Bakka bjuggu þau 1849-1893.
Sigríður lést hjá Sigríði dóttur sinni í Móum á Kjalarnesi 1907.

Maður hennar, (28. maí 1841), var Jón Oddsson tómthúsmaður í Jónshúsi, síðar bóndi á Bakka í A-landeyjum, f. 23. febrúar 1817, d. 2. desember 1894.
Börn þeirra hér:
2. Árni Jónsson vinnumaður í Godthaab, f. 22. júlí 1841 í Eyjum, fluttist til Kaupmannahafnar 1867.
3. Oddur Jónsson bóndi í Landakoti á Reykjanesi, f. 12. september 1842 í Eyjum, d. 27. júlí 1913.
4. Guðný Jónsdóttir, f. 16. ágúst 1844, d. 22. ágúst 1844 úr ginklofa.
5. Jón Jónsson bóndi og formaður á Tjörnum og Seljalandi u. Eyjafjöllum, f. 15. nóvember 1845 í Eyjum, d. 5. desember 1918.
Börn fædd utan Eyja:
6. Loftur, f. 12. september 1847, d. 19. september 1847.
7. Loftur, f. 30. október 1848, d. 4. nóvember 1848.
8. Þóra húsfreyja á Syðri-Völlum á Vatnsnesi, f. 10. mars 1850, d. 10. júlí 1892.
9. Oddný húsfreyja á Bakka í A-Landeyjum, f. 21. apríl 1852, d . 30. mars 1947.
10. Kristín Jónsdóttir bústýra í Efri-Úlfsstaðahjáleigu í A-Landeyjum, vinnukona í Breiðholti 1910, síðar ábúandi í Nesi (nálægt Bakka), saumakona, f. 24. september 1853, d. 4. júlí 1942 á Stórólfshvoli.
11. Sigríður, húsfreyja í Móum á Kjalarnesi, f. 8. júní 1855, d. 6. apríl 1937.
12. Þorgerður húsfreyja í Kirkjulandshjáleigu í A-Landeyjum, f. 20. mars 1857, fluttist til Utah.
13. Guðný Jónsdóttir í Hólshúsi, f. 16. júlí 1858 á Bakka, d. 20. desember 1891 í Utah.
14. Þórdís, f. 2. september 1859, fór til Danmerkur.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
• Manntöl.
• Prestþjónustubækur.
• Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.