Sigla himinfley

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 13:29 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 13:29 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þættirnir "Sigla Himinfley" voru að mestu myndaðir í Vestmannaeyjum. Þeir voru sýndir í Ríkissjónvarpinu árið 1994. Þeir voru gerðir eftir handriti Þráins Bertelssonar og á meðal leikara voru Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Aðalpersónurnar bjuggu í húsinu Breiðablik.

Þættirnir nutu mikilla vinsælda en þeir fjölluðu um útgerðarmann, fjölskyldumál hans og leiðir til að bjarga fjölskyldufyrirtækinu.