„Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Sporin í Landakirkju“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: <br> <big><big><center>Sporin í Landakirkju.</center></big></big> <br> Það var einhverju sinni, er menn komu í Landakirkju aðfangadagskvöld til messu, að þeir sáu spor eftir ber...)
 
m (Verndaði „Sporin í Landakirkju“ [edit=sysop:move=sysop])
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 2. desember 2011 kl. 17:38


Sporin í Landakirkju.


Það var einhverju sinni, er menn komu í Landakirkju aðfangadagskvöld til messu, að þeir sáu spor eftir bera fætur liggja niður stigann ofan af loftinu, inn kórinn og að dyrunum inn í altarið. Þar hurfu þau og sáust þess engin merki, að gengið hefði verið til baka. Voru sporin mjög greinileg og markaði fyrir tánum á gólfinu, eins og fæturnir hefði verið blautir og forugir. Voru förin einkennilega stór og reyndust miklu stærri en för þeirra, sem mældu, enda þótt þeir væri á skóm. Furðaði menn mjög á sporum þessum, og voru ýmsar getur að því leiddar hverju sætti, en aldrei urðu menn nokkurs vísari um þetta.