Sólveig Rósa Benedikta Traustadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sólveig Rósa Benedikta Traustadóttir.

Sólveig Rósa Benedikta Traustadóttir frá Hjarðarholti við Vestmannabraut 68, húsfreyja, sjúkraliði fæddist þar 12, júlí 1950 og lést 5. mars 2011 á Landspítalanum í Kópavogi.
Foreldrar hennar voru Trausti Guðjónsson frá Skaftafelli, f. 13. ágúst 1915 að Eyjarhólum, d. 2. desember 2008 á Landspítalanum, og kona hans Ragnheiður Jónsdóttir frá Brekku í Gilsfirði, húsfreyja, f. 12. október 1917, d. 3. mars 2011 á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík.

Börn Ragnheiðar og Trausta:
1. Halldóra Traustadóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 28. júní 1939. Maður hennar er Einar Jónasson, látinn.
2. Guðjón Traustason vélvirkjameistari, f. 23. apríl 1943. Kona hans Guðrún Kristín Erlendsdóttir, látin.
3. Kornelíus Traustason húsasmíðameistari, f. 30. maí 1946. Kona hans Elín Pálsdóttir.
4. Símon Eðvald Traustason bóndi á Ketu í Skagafirði, f. 1. ágúst 1948. Kona hans Ingibjörg Jóhanna Jóhannesdóttir.
5. Sólveig Rósa Benedikta Traustadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 12. júlí 1950, d. 5. mars 2011. Maður hennar Sigurður S. Wium, látinn.
6. Vörður Leví Traustason prestur og fyrrverandi lögregluþjónn, f. 21. okt. 1952. Kona hans Ester Karin Jacobsen frá Noregi.
7. Guðrún Ingveldur Traustadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 5. mars 1954. Maður hennar Geir Jón Þórisson.

Sólveig var með foreldrum sínum, í Hjarðarholti, flutti með þeim til Kópavogs.
Hún stundaði nám í Gagnfræðaskóla verknáms, stundaði nám í Troens Bevis Bibel- & Misjons Institutt í Noregi 1981-1982, lauk námi í Sjúkraliðaskóla Íslands 1990, lauk námskeiði í tölvunámi í lyfhrifafræði III og ensku fyrir heilbrigðisgeira.
Hún vann síðan á Borgarspítalanum í Fossvogi, var trúnaðarmaður þar.
Sólveig var virk í kristilegu starfi hér á landi og erlendis, meðal annars var hún öldungur í Fríkirkjunni Veginum og sat í stjórn Aglow á Íslandi, kristilegum samtökum.
Þau Sigurður giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn.
Sólveig 2011 og Sigurður 2014.

I. Maður Sólveigar, (31. desember 1967), var Sigurður S. Wiium fasteignasali, skattaráðgjafi, f. 27. desember 1944, d. 2. mars 2014. Foreldrar hans voru Sigurður Magnússon Wiium, f. 2. apríl 1903, d. 21. desember 1957, og kona hans Níelsína Ósk Daníelsdóttir Wiium húsfreyja, f. 23. febrúar 1913, d. 7. október 1993.
Börn þeirra:
1. Hrefna Rós Sigurðardóttir Wiium, sjúkraliði, f. 9. desember 1968. Maður hennar Ívar Jóhann Halldórsson.
2. Sigurður Heiðar Wiium, þyrluflugmaður, f. 3 maí 1971. Kona hans Gerður Rós Ásgeirsdóttir.
3. Elva Ósk S. Wiium, háskólanemi, f. 7. mars 1975. Maður hennar Þórarinn Friðriksson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 11. mars 2011. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sjúkraliðar á Íslandi 1966-1996. Ritstjóri: Sigurður Hermundarson. Mál og mynd 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.