„Sæfjall“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 1: Lína 1:
{{fjöll}}
{{fjöll}}
'''Sæfjall''' er nyrsta fjallið í suðurklettum. Það stendur suður af [[Helgafell]]i og norður af [[Kervíkurfjall]]i og myndar ásamt því vesturbrún [[Stakkabót]]ar.  
'''Sæfjall''' er nyrsta fjallið í suðurklettum. Það stendur suður af [[Helgafell]]i og norður af [[Kervíkurfjall]]i og myndar ásamt því vesturbrún [[Stakkabót]]ar. Efst á Sæfjalli, í 179 metra hæð eru tvær móbergsbríkur eða grettistök sem sjást langt að. Bríkurnar heita Háubúr og eru þær talsvert notaðar til miða. 
Nokkur [[Lundi|lundaveiði]] er stunduð í Sæfjalli. Norðan við Sæfjall stendur [[Flugvöllurinn]].
Nokkur [[Lundi|lundaveiði]] er stunduð í Sæfjalli. Norðan við Sæfjall stendur [[Flugvöllurinn]].Vegna lagningar flugbrautar á sínum tíma hefur verið sneytt af austuröxl Sæfjalls sem heitir Sæfjallsás og endar flugbrautin þar í hengiflugi. Í lundabyggðinni sunnan í bröttum brekkum Sæfjalls eru margir góðir lundaveiðistaðir og má þar nefna Hrútsbring, bergkamb í miðju Sæfjalli sem gengur frá brún í sjó niður og svo Rofið. Sunnan við Sæfjall er Kervíkurfjall.

Núverandi breyting frá og með 20. febrúar 2021 kl. 22:17

Sæfjall er nyrsta fjallið í suðurklettum. Það stendur suður af Helgafelli og norður af Kervíkurfjalli og myndar ásamt því vesturbrún Stakkabótar. Efst á Sæfjalli, í 179 metra hæð eru tvær móbergsbríkur eða grettistök sem sjást langt að. Bríkurnar heita Háubúr og eru þær talsvert notaðar til miða. Nokkur lundaveiði er stunduð í Sæfjalli. Norðan við Sæfjall stendur Flugvöllurinn.Vegna lagningar flugbrautar á sínum tíma hefur verið sneytt af austuröxl Sæfjalls sem heitir Sæfjallsás og endar flugbrautin þar í hengiflugi. Í lundabyggðinni sunnan í bröttum brekkum Sæfjalls eru margir góðir lundaveiðistaðir og má þar nefna Hrútsbring, bergkamb í miðju Sæfjalli sem gengur frá brún í sjó niður og svo Rofið. Sunnan við Sæfjall er Kervíkurfjall.