Ritverk Árna Árnasonar/Samúel Bjarnason mormónaprestur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2013 kl. 11:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2013 kl. 11:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Samúel Bjarnason''' bóndi í Görðum við Kirkjubæ, fæddist 22. apríl 1823 og lést 16. ágúst 1890 í Spanish Fork, Utah. <br> Faðir hans var B...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Samúel Bjarnason bóndi í Görðum við Kirkjubæ, fæddist 22. apríl 1823 og lést 16. ágúst 1890 í Spanish Fork, Utah.
Faðir hans var Bjarni bóndi á Strönd og Keldnaseli á Rangárvöllum, Helgusöndum og Efri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum, f. 21. febrúar 1799 í Keldnaseli (mt. 1816: á Reyðarvatni), d. 25. apríl 1877 í Efri-Holtum, Jónsson bónda í Keldnaseli, f. 1768 á Ægissíðu, skírður 3. apríl það ár, d. 28. febrúar 1845 á Galtalæk, og fyrri konu, (24. maí 1798), Jóns, Valgerðar Guðbrandsdóttur, f. 1761, d. 16. apríl 1801. (Sjá ætt hennar á síðu Jóns í Háagarði).
Móðir Samúels mormóna og barnsmóðir Bjarna á Strönd var Margrét, f. 6. maí 1797, d. 15. maí 1837, Gísladóttir bónda í Hólshúsum í Höfnum, f. 1750, d. 12. maí 1807, Kjartanssonar bónda í Vorsabæ í Ölfusi, f. 1719, Helgasonar. Móðir Margrétar og kona Gísla var Guðrún, skírð 30. ágúst 1765, d. 27. apríl 1836, Hansdóttir bónda í Kotmúla í Fljótshlíð, f. 1730, d. 22. október 1791, Bergsteinssonar.

Kona Samúels var:
Margrét Gísladóttir húsfreyja, f. 20. nóvember 1822, d. í Spanish Fork 14. júní 1914.
Hún var hálfsystir, (af sama föður), Þorgerðar Gísladóttur, fyrri konu Sigurðar Sigurfinnssonar hreppstjóra. Móðir Margrétar var Sigríður Guðmundsdóttir fyrsta kona Gísla Andréssonar, síðar í Görðum
Barn þeirra Margrétar var Sigríður, skírð í Eyjum 14. júlí 1850, d. 24. nóvember 1851.

Árið 1835 var Samúel Bjarnason 12 ára með móður sinni Margréti Gísladóttur 38 ára, á Teigi í Fljótshlíð.
Hann mun hafa komið ungur til Eyja og alist um skeið upp á Miðhúsum.
Hann tók mormónatrú í Eyjum fyrir áhrif frá íslenskum trúboðum, sem tekið höfðu trú í Danmörku og fékk prestvígslu hjá Lorensen sendiboða dönsku mormónasamtakanna. Samúel skírði fólk til mormónatrúar og olli það yfirvöldum miklum áhyggjum og hlutust af starfseminni kærur og málaferli. (Vísast á greinar Sigfúsar M. Johnsen í Bliki og kafla um mormónana í Sögu Vestmannaeyja).
Árið 1850 eru þau Margrét skráð í Jónshúsi, bæði 28 ára. Þar eru einnig Margrét Gísladóttir 53 ára, sem mun vera móðir hans, og maður hennar Guðmundur Guðmundsson 55 ára, f. í Sigluvíkursókn.
Þau Samúel og Margrét lögðu upp til Utah 1854. Í Utah nam Samúel stórt land, 160 ekrur, og bjuggu þau hjón þar góðu búi í 34 ár. Þar andaðist Samúel nær sjötugur 1890, en kona hans lifði hann lengi og varð háöldruð, dó 1914. Þau voru að sögn Sigfúsar M. Johnsen fyrstu íslensku hjónin, sem fluttust til Utah.
Yfir gröf hvors þeirra í Spanish Fork er minnisvarði með skrift: 1st Icelander 1855.
Árni Árnason nefnir hann, en án sérstakrar umsagnar í skrifum sínum.
Umsögn SMJ: „Varð Samúel frægur lundaveiðimaður, svo að fáir voru honum fremri.“

Sjá frekara efni um mormónana í Vestmannaeyjum í ritum Sigfúsar M. Johnsen: Sögu Vestmannaeyja:
V. Um mormónana í Vestmannaeyjum, og greinaflokk Sigfúsar bæjarfógeta í Bliki:
1. Blik 1960, Þórarinn Hafliðason, fyrri hluti.
1. Blik 1960, Þórarinn Hafliðason, seinni hluti.
2. Blik 1961, Fyrstu mormónarnir, sem skírðir voru á Íslandi.
3. Blik 1962, Fyrstu íslenzku hjónin í Vesturheimi.
4. Blik 1963, Mormónarnir í Vestmannaeyjum, 4. grein.
5. Blik 1965, Mormónarnir í Vestmannaeyjum.


Heimildir

  • Holtamannabók I–Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja H.F. 1946.
  • Blik.
  • Manntöl.
  • FamilySearch.org — Family History...
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.