Ritverk Árna Árnasonar/Guðjón Scheving
Revision as of 15:00, 17 August 2013 by Viglundur (talk | contribs) (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Guðjón Scheving“ ([edit=sysop] (ótiltekinn)))
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Guðjón var nokkur sumur í Elliðaey.
Guðjón er maður meðalhár, skolhærður, fremur breiðleitur, allþrekinn og frísklegur á velli, hátt enni og kinnbein. Hann er skapléttur og brosmildur, vel gefinn að gáfum, ræðumaður allsleipur og hefir gefið sig nokkuð að stjórnmálum með sjálfstæðismönnum.
Guðjón var nokkuð til fuglaveiða fyrr á árum, allgóður liðsmaður á þeim vettvangi.
Veiðimaður hefði hann eflaust getað orðið, en hætti fuglaferðum, áður en hann næði verulegri leikni. Guðjón fær gott orð yfirleitt, er málari að iðn, fær í sínu fagi.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Guðjón Scheving
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.