Ritverk Árna Árnasonar/Björgvin Pálsson (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 21:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Björgvin Hafsteinn Pálsson''' frá Brekkuhúsi, fæddist 20. janúar 1909 og lést 22. maí 1932, hrapaði úr Mykitakstó.<br> Foreldrar hans voru [[Páll Sigurðsson (L...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björgvin Hafsteinn Pálsson frá Brekkuhúsi, fæddist 20. janúar 1909 og lést 22. maí 1932, hrapaði úr Mykitakstó.
Foreldrar hans voru Páll Sigurðsson bóndi í Butru í Landeyjum, síðar bifreiðastjóri í Laufholti hér, f. 8. mars 1873, d. 8. október 1924 í Eyjum, og kona hans Soffía Helgadóttir, f. 4. október 1879 að Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, d. 18. desember 1969 í Reykjavík.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Systkini Ingibjargar Árnadóttur móður Páls í Laufholti voru m.a.:
Árni, faðir Árna á Grund Árnasonar.
Björg, móðir Bjargar á Gilsbakka Sighvatsdóttur.
Guðbjörg, var kona Bergs Magnússonar bróður Óla í Nýborg.
Ingibjörg, - sbr. hér að ofan.
Nikulás bóndi í Krosshjáleigu í A-Landeyjum, - faðir Einars á Búðarhóli þar.
Sigríður, - móðir Guðmundar í Hrísnesi hér.
Er margt fólk frá þessum systkinum komið hér í Eyjum og víðar.
Björgvin var ókvæntur. Hann var alinn upp í Brekkuhúsi hjá föðursystur sinni Sigurbjörgu konu Sigurðar Sveinbjörnssonar.
Hann var allhár vexti og þrekinn, dökkur á brún og brá, frekar breiðleitur. Hann var kátur og skemmtilegur með að vera, – harðduglegur maður.
Hans naut skamma stund við bjarggöngur og veiðar, sem hann stundaði af elju og áhuga, því að hann hrapaði til dauðs úr Mykitakstó um vorið 1932, aðeins 22 ára gamall.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir