Ragnheiður Stefanía Sigfúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. maí 2021 kl. 13:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. maí 2021 kl. 13:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ragnheiður Stefanía Sigfúsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur, fæddist að Vestri-Löndum 7. júlí 1883, d. í Wilmington North Carolina.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigfús Árnason organisti og söngstjóri og kona hans Jónína K.N. Brynjólfsdóttir húsfreyja. Þau hjón bjuggu á Vestri-Löndum.
Árið 1907 fór hún til Danmerkur og dvaldist þar í 7 ár. Fyrstu árin var hún þar við nám. Fyrst hóf hún hjúkrunarnám, en hætti því innan tíðar og aflaði sér menntunar til „munns og handa“ í ýmsum dönskum skólum. T.d. stundaði hún nám við Lýðháskólann í Askov sumarið 1908.
,,Ragnheiður sigldi frá Kaupmannahöfn til Bandaríkjanna veturinn 1914 og kom þá við á Azoreyjum á leiðinni. Þær hafa verið henni undralönd síðan“.
Í Bandaríkjunum átti hún heima síðan. Um mörg ár var hún yfirhjúkrunarkona við sjúkrahús þar vestra. Hún lést í Wilmington North Carolina.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.