„Oddgeir Þórðarson Guðmundsen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Þorsteinn Þ. Víglundsson. Kennaratal frá 1885-1904. ''[[Blik]].'' 23. árgangur 1962
* [[Þorsteinn Þ. Víglundsson]]. Kennaratal frá 1885-1904. ''[[Blik]].'' 23. árgangur 1962
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
* [[Guðlaugur Gíslason]]: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
}}



Útgáfa síðunnar 24. júlí 2006 kl. 13:35

Oddgeir Þórðarson Guðmundsen var prestur í Vestmannaeyjum frá 1889 til 1924. Hann var fæddur 11. ágúst 1849 í Árnessýslu. Foreldrar hans voru Þórður sýslumaður Guðmundsson að Litlahrauni og kona hans Jóhanna Andrea Lárusdóttir. Oddgeir lauk stúdentsprófi frá Lærðaskólanum í Reykjavík árið 1870 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Prestaskólanum árið 1972. Hann fékk Sólheimaþing 1874, Miklaholt 1882 og Vestmannaeyjaprestakall 1889, sem hann þjónaði til æviloka. Séra Oddgeir tók mikinn þátt í sýslu- og sveitarstjórnarmálum og átti sæti í sýslunefnd um nær þrjátíu ára skeið.

Séra Oddgeir Guðmundsen var barnakennari í Vestmannaeyjum árin 1893-1904. Árið 1893 hóf hann að kenna við Barnaskólann og var við skólann í 11 ár. Hann kenndi fyrstu tvö árin en tók síðan alfarið við stjórn skólans. Hann saknaði alltaf kennarahlutverksins eftir að hann hætti og sótti nokkrum árum síðar um stöðu við skólann en var synjað.

Oddgeir leitaði ávallt eftir því að bæta hag sóknarbarna sinna og hjálpaði hann nágrönnum sínum og sóknarbörnum að fá vörur á hagstæðu verði.

Séra Oddgeir var talinn ágætur ræðumaður og hjálpaði fólki í nauðum og sorgum. Hann vann í þágu bindindismála og átti ríkan þátt í velferðarstarfi fyrir æskulýðinn í sveitarfélaginu.

Eiginkona Oddgeirs var Anna Guðmundsdóttir, prests í Arnarbæli, Einarssonar. Áttu þau 15 börn, tíu komust upp og eru nokkrir afkomendur þeirra búsettir í Vestmannaeyjum. Anna lést 2. desember 1919, stuttu eftir samsæti til heiðurs hjónunum í tilefni af löngu og giftulegu starfi í sókninni. Séra Oddgeir lést 5 árum seinna, þann 2. janúar 1924.



Heimildir

<meta:creator>Daníel St.</meta:creator>