„Magnús Magnússon (Sjólyst)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Magnús Magnússon''' vinnumaður í Sjólyst fæddist 24. september 1821 á Strandarhöfða í Fljótshlíð og drukknaði 30. janúar 1847.<br> Foreldrar hans voru Magnús Lo...)
 
m (Verndaði „Magnús Magnússon (Sjólyst)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 9. ágúst 2014 kl. 14:47

Magnús Magnússon vinnumaður í Sjólyst fæddist 24. september 1821 á Strandarhöfða í Fljótshlíð og drukknaði 30. janúar 1847.
Foreldrar hans voru Magnús Loftsson bóndi, f. 1795, d. 25. júlí 1826, og kona hans Ingigerður Magnúsdóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1798, d. 2. nóvember 1867.

Magnús fluttist 1842 frá Hólmum í Landeyjum, vinnumaður, að Götu. Hann var vinnumaður í Steinshúsi 1843, í Sjólyst 1845, í Steinmóðshúsi 1846.
Magnús drukknaði við Landeyjasand 1847.

Barnsmóðir hans að tveim börnum var Guðrún Jónsdóttir, síðar húsfreyja á Löndum, kona Eyjólfs Jónssonar.
Börn þeirra hér:
1. Jón Magnússon, f. 12. júní 1846 í Steinmóðshúsi, d. 21. ágúst 1846, (sjúkdómsheiti ólesanlegt).
2. Magnús Jón Magnússon, f. 29. október 1847 í Kastala, eftir lát föður síns, d. líklega í Stóra-Gerði 21. nóvember 1851 úr „barnaveikinni“, 5 ára.


Heimildir