Laufás

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 09:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 09:16 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Laufás og nágreni.

Húsið Laufás stóð við Austurveg 5 og var áður fyrr Vestasti-HlaðbærVilborgarstöðum. Húsið var byggt af Jóni Á. Kristjánssyni sem m.a. var söngstjóri „Principal“kórsins svonefnda en það var blandaður kór sem starfaði í Vestmannaeyjum á árunum 1903 til 1905.

Árið 1905 keypti Þorsteinn Jónsson] húsið og flutti þangað inn ásamt konu sinni Elínborgu Gísladóttur en lét rífa það árið 1912 og byggði nýtt hús að Laufási. Var þetta nýja hús byggt úr timbri ofan á steyptum kjallara og með rúmgóðu risi. Þorsteinn var mikill útgerðarmaður og var einn af upphafsmönnum vélbátaútgerðar í Eyjum. Hann er einnig þekktur fyrir bækur sínar tvær; ævisögu sína er nefnist Formannsævi í Eyjum og Aldahvörf í Eyjum, sem er útgerðarsaga Vestmannaeyja fram til 1930.

Fyrir gosið 1973 bjuggu þar Dagný, dóttir Þorsteins, og maður hennar Bogi Finnbogason, ásamt tveimur börnum sínum.


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson: Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík 1973.