Langholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 13:01 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 13:01 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Langholt við Vestmannabraut.

Húsið Langholt stendur við Vestmannabraut 48a. Einar Pálsson, vélamaður, reisti húsið árið 1911. Árið 1951 var húsið svo stækkað verulega. Auk þess að vera íbúðarhús var einnig verslun í því um tíma.

Í húsinu hafa ýmsir kunnir aðilar búið í gegnum tíðina. Má þar nefna Guðjón Scheving og dótturson hans Hrein Loftsson lögmann. Árið 2006 bjó Tómas Sveinsson ásamt fjölskyldu sinni í húsinu.


Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.