Jón Bergur Jónsson (eldri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. október 2012 kl. 22:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. október 2012 kl. 22:06 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson


Jón Bergur eldri

Jón Bergur Jónsson eldri frá Ólafshúsum fæddist 10. ágúst 1864 að Hörgslandi á Síðu, V-Skaft. og lést 16. apríl 1952.
Hann fluttist til Eyja 1893, var sjómaður og útvegsbóndi.
Jón Bergur var tvígiftur.
Fyrri kona hans (15. nóvember 1895) var Elín Sigurðardóttir, f. 5. desember 1865 á Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum, d. 26.febrúar 1906, aðeins fertug að aldri.
Börn þeirra voru:
1. Sigurlín, f. 1896, d. 1923. Hún var kona Ólafs Ingileifssonar.
2. Jón Bergur yngri, f. 1900.
3. Guðfinna Jónsdóttir, f. 1902, d. 24. febrúar 1994. Hún var kona Ólafs Ingileifssonar.
4. Guðni á Vegamótum, f. 1903, d. 9. febrúar 1944.
Seinni kona Jóns Bergs var Jórunn Erlendsdóttir. Þau eignuðust soninn Erlend.