Jón Þorsteinsson (prestur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 09:38 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 09:38 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorsteinsson, píslarvottur, 1607 til 1627. Foreldrar: Þorsteinn Sighvatsson í Höfn í Melasveit og kona hans Ásta Eiríksdóttir prests í Reykholti Jónssonar. Séra Jón vígðist að Húsafelli í Borgarfirði 1598, fékk Torfastaði 1601 og Kirkjubæ 1607. Var hann gáfumaður mikill og nafnkunnugt sálmaskáld. Var hann drepinn af Tyrkjum er þeir rændu Vestmannaeyjar árið 1627. Kona hans var Margrét Jónsdóttir að Hæli í Flókadal, Péturssonar. Var hún hertekin í Tyrkjaráninu ásamt tveimur börnum þeirra og flutt til Alsír. Kom hún ekki aftur til landsins.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.