Jónína Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. maí 2024 kl. 12:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. maí 2024 kl. 12:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Jónína Þorsteinsdóttir. '''Jónína Þorsteinsdóttir''' frá Vesturhúsum, iðnverkakona fæddist þar 23. september 1944 og lést 11. apríl 2024.<br> Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþaksholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jónína Þorsteinsdóttir.

Jónína Þorsteinsdóttir frá Vesturhúsum, iðnverkakona fæddist þar 23. september 1944 og lést 11. apríl 2024.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþaksholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum, d. 14. janúar 1993.

Börn Gíslnýjar og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen.
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu.
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni.
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni.
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju.
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni.
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið.
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara.
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi.
11. Jónína iðnverkakona í Kópavogi, f. 23. september 1944, d. 11. apríl 2024. Maður hennar Guðjón Þorbergsson iðnverkamaður.
. 12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur.
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara.
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda.
16. Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni vélstjóra, verkstjóra, innflytjanda.

Jónína var með foreldrum sínum í æsku, en var langdvölum á sjúkrahúsi vegna meðfæddrar fötlunar sinnar og dvaldi mörg sumur hjá frændfólki sínu í Dufþaksholti í Hvolhreppi.
Hún lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1961.
Jónína vann fiskvinnslustörf í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja, dvaldi fimm ár í Danmörku.
Síðar vann hún hjá Heildverslun Halldórs Jónssonar í Rvk.
Þau Guðjón giftu sig 1972, eignuðust ekki börn saman, en Magnús Sigurðsson systursonur Jónínu dvaldi oft hjá þeim á unglingsárum sínum. Þau bjuggu í Björk við Vestmannabraut 47 til Goss 1973, fluttu þá til Rvk og síðan í Kópavog.
I. Maður Jónínu, (4. október 1972), var Guðjón Þorbergsson iðnverkamaður, f. 19. september 1941, d. 5. desember 2012.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.