Jóhanna Jósefína Erlendsdóttir (Ásbyrgi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. mars 2013 kl. 15:42 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. mars 2013 kl. 15:42 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Jósefína Erlendsdóttir''' húsfreyja í Ásbyrgi fæddist 5. júlí 1888 og lést 3. september 1970.<br> Faðir hennar var Erlendur trésmíðameistari í Reykjavík, ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Jósefína Erlendsdóttir húsfreyja í Ásbyrgi fæddist 5. júlí 1888 og lést 3. september 1970.
Faðir hennar var Erlendur trésmíðameistari í Reykjavík, f. 11. nóvember 1852, d. 30. júlí 1933, Árnason bónda í Brekkukoti á Álftanesi, f. 11. október 1822, d. 22. október 1866, Jóhannssonar bónda í Arnarnesi (í núv. Garðabæ), f. 5. október 1776, d. 27. janúar 1841, Jónssonar, og konu Jóhanns í Arnarnesi (5. nóvember 1804), Þórunnar húsfreyju, f. 1783, d. 30. nóvember 1845, Árnadóttur.
Móðir Erlendar og kona Árna var Ingibjörg, á Grund í Auðkúlusókn, A-Hún. 1835 og 1845, húsfreyja í Brekkukoti á Álftanesi 1860, ekkja, húskona í Hjallakoti þar 1870, f. 8. janúar 1831, d. 13. janúar 1883, Guðmundsdóttir bónda á Grund 1845, f. 1777, d. 1856, Helgasonar, og annarrar konu (4. október 1822) Guðmundar Helgasonar, Bjargar húsfreyju á Grund 1835, f. 1787, d. 26. júní 1840, Ólafsdóttur.

Móðir Jóhönnu og kona Erlendar var Ágústa Hólmfríður Jóhanna Gustavsdóttir Ahrens, f. 22. júlí 1850, d. 24. nóvember 1933. Faðir hennar var Gustav Christian Joachim Ahrens smiður í Reykjavík, f. 1819, d. 20. júlí 1960
Móðir Ágústu Ahrens og kona Gustavs var Guðrún Guðlaugsdóttir Ahrens húsfreyja í Rvk 1860 og 1870, fór til Vesturheims 1878, ásamt Jósefínu Jósefsdóttur, dóttur sinni, f. 6. október 1822, Guðlaugsdóttir bónda á Fjalli í Sléttuhlíð og á Bæjarskerjum á Miðnesi, f. 1786, d. 10. febrúar 1830, drukknaði, Ólafssonar og konu Guðlaugs, Hólmfríðar húsfreyju, f. 1793 í Sléttuhlíð, d. 28. desember 1866, Sigurðardóttur.

Jóhanna húsfreyja í Ásbyrgi var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Guðni Hjörtur Johnsen útgerðarmaður, bjargveiðimaður, f. 15. júní 1888, d. 18. janúar 1921.
Börn þeirra Jóhönnu og Guðna voru:
1. Friðþjófur G. Johnsen lögfræðingur, fæddur 21. júlí 1911, dáinn 20. apríl 1963.
2. Ágústa Sigríður Möller húsfreyja í Reykjavík, fædd 26. júní 1913, dáin 29. október 2007.
3. Rögnvaldur Johnsen húsameistari, fæddur 5. apríl 1920, dáinn 26. febrúar 2008.
II. Síðari maður Jóhönnu var Sterker Hermansen, norskur maður, pípulagningamaður, f. 19. febrúar 1888, d. 26. maí 1952. Hann hét áður Störker Cedrup Hermansen.
Börn Jóhönnu og Sterker Hermansen:
1. Guðni Agnar Hermansen listmálari, málarameistari, f. 28. mars 1928, d. 21. september 1989.
2. Sveinbjörn Hermansen skrifstofumaður, f. 13. desember 1930, d. 22. júní 1987.
3. Erla Ágústa Björg Hermansen húsfreyja, f. 10. maí 1934, d. 10. september 2012.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ættir Austur-Húnvetninga. Guðmundur Sigurður Jóhannsson og Magnús Björnsson. Mál og mynd 1999.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.