Jóhann Ellert Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. apríl 2024 kl. 15:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. apríl 2024 kl. 15:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhann Ellert Jóhannsson''' frá Bessastíg 10, viðskiptafræðingur, fjármálastjóri fæddist þar 8. október 1956.<br> Foreldrar hans voru Jóhann Ármann Kristjánsson frá Reykjadal, sjómaður, vélstjóri, matsveinn, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002, og kona hans Elín Guðlaugsdóttir frá Sólbergi við Brekastíg 3, húsfreyja...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Ellert Jóhannsson frá Bessastíg 10, viðskiptafræðingur, fjármálastjóri fæddist þar 8. október 1956.
Foreldrar hans voru Jóhann Ármann Kristjánsson frá Reykjadal, sjómaður, vélstjóri, matsveinn, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002, og kona hans Elín Guðlaugsdóttir frá Sólbergi við Brekastíg 3, húsfreyja, f. 21. apríl 1930, d. 5. júlí 2022.

Börn Elínar og Jóhanns Ármanns:
1. Guðlaugur Jóhannsson netagerðarmaður, sjómaður, f. 29. apríl 1948 á Sólbergi. Kona hans Margrét Jenný Gunnarsdóttir.
2. Ragna Jóhannsdóttir húsfreyja, starfsmaður á elliheimili í Danmörku, f. 6. nóvember 1949 í Baðhúsinu. Maður hennar Jörn Boklund.
3. Guðný Kristín Jóhannsdóttir sjúkraliði í Eyjum, f. 7. júní 1953 í Reykjadal, ógift.
4. Jóhann Ellert Jóhannsson viðskiptafræðingur, fjármálastjóri í Noregi, f. 8. október 1956 á Bessastíg 10. Kona hans Solveig Krusholm.

Jóhann lærði viðskiptafræði.
Hann varð fjármálastjóri aðventista í Noregi og á Íslandi.
Þau Solveig giftu sig 1980, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Jóhanns, (28. desember 1980), er Solveig Inger Tresselt Krusholm frá Danmörku, hjúkrunarfræðingur, f. 27. apríl 1958 í Fredriksberg í Danmörku. Foreldrar hennar Jens Christian Krusholm bakari, f. 26. september 1915, og kona hans Sonja Henrikke Krusholm, f. 17. maí 1921.
Börn þeirra:
1. Simon Krusholm Jóhannsson, f. 26. nóvember 1983.
2. Sarah Krusholm Jóhannsson, f. 3. október 1986.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
  • Íbúaskrá 1986.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.