Ingigerður Árnadóttir (Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. janúar 2014 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. janúar 2014 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ingigerður Árnadóttir húsfreyja, ljósmóðir í Dölum og Nýjabæ, f. um 1764 að Lækjarbakka í Mýrdal, d. 20. maí 1833 í Nýjabæ í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Árni bóndi að Lækjarbakka, f. 1722, Jóns bónda á s.st. Árnasonar og ónefnd móðir.

Ingigerður var komin til Eyja 1792, var ekkja þar 1798, húsfreyja í Dölum 1801 og í Nýjabæ 1816. Hún nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé. Hún gegndi ljósmóðurstörfum í Eyjum 1805-1812 og naut launa úr konungssjóði.

Maki I, barnsfaðir: Ögmundur (líklega) bóndi á Hvoli í Mýrdal 1777, f. 1751, d. 16. febr. 1793, Björnsson bónda á Hvoli í Mýrdal. Hann mun vera af sömu ætt og Ögmundur Árnason frá Kerlingardal í Mýrdal, faðir þeirra Jóns í Stakkagerði og síðar í Dalbæ, Ögmundar í Landakoti og Arnbjarnar í Presthúsum.
Börn þeirra:
1. Oddur, f. um 1787
2. Kristín, f. um 1788.

Maki II, (1792): Árni Hákonarson bóndi og sjómaður í Stóra-Gerði, f. um 1741, drukknaði 16. febr. 1793.
Barn þeirra:
3. Þorbjörg, f. 14. apríl 1793, d. 20. s. mán úr ginklofa.

Maki III, (6. des. 1798): Jón Einarsson útvegsbóndi, lóðs- og hreppstjóri, f. um 1773 á Búastöðum, d. 14. marz 1846, líklega að Miðhúsum. Þau Ingigerður eru búsett í Dölum 1801, en í Nýjabæ 1816. Jón er ekkill að Miðhúsum 1845.
Börn þeirra:
4. Kristín, f. 9. jan. 1803, d. 17. sama mánaðar úr ginklofa.
5. Einar, f. 4. jan. 1804, d. 13. sama mánaðar úr ginklofa.
6. Kristín, f. 13. maí 1806, d. 26. maí 1806 úr ginklofa.
7. Jón, f. 10. okt. 1808.


Heimildir

  • Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja I. Reykjavík: 1946. bls. 149.
  • Sigfús M. Johnsen. Blik 1960, bls. 110-112.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.