Ingigerður Árnadóttir (Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 18:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 18:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Lagfæringar og leiðréttingar.)
Fara í flakk Fara í leit

Ingigerður Árnadóttir húsfreyja, ljósmóðir í Dölum og Nýjabæ, f. um 1764 að Lækjarbakka í Mýrdal, d. 20. maí 1833 í Nýjabæ í Eyjum.

Foreldrar hennar voru Árni bóndi að Lækjarbakka, f. 1722, Jóns bónda á s.st. Árnasonar og ónefnd móðir.

Ingigerður var komin til Eyja 1792, var ekkja þar 1798, húsfreyja í Dölum 1801 og í Nýjabæ 1816. Hún nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé. Hún gegndi ljósmóðurstörfum í Eyjum 1805-1812 og naut launa úr konungssjóði.

Maki I, barnsfaðir: Ögmundur (líklega) bóndi á Hvoli í Mýrdal 1777, f. 1751, d. 16. febr. 1793, Björnsson bónda á Hvoli í Mýrdal. Hann mun vera af sömu ætt og Ögmundur Árnason frá Kerlingardal í Mýrdal, faðir þeirra Jóns í Stakkagerði og síðar í Dalbæ, Ögmundar í Landakoti og Arnbjarnar í Presthúsum.
Börn: Oddur, f. um 1787; Kristín, f. um 1788.

Maki II, (1792): Árni Hákonarson bóndi í Stóra-Gerði, f. um 1741, drukknaði 16. febr. 1793.
Barn: Þorbjörg, f. 14. apríl 1793, d. 20. s. mán.

Maki III, (6. des. 1798): Jón Einarsson útvegsbóndi, lóðs- og hreppstjóri, f. um 1773 á Búastöðum, d. 14. marz 1846, líklega að Miðhúsum. Þau Ingigerður eru búsett í Dölum 1801, en í Nýjabæ 1816. Jón er ekkill að Miðhúsum 1845.

Börn:
Kristín, f. 9. jan. 1803, d. 17. sama mánaðar úr ginklofa.
Einar, f. 4. jan. 1804, d. 13. sama mánaðar úr ginklofa.
Kristín, f. 13. maí 1806, d. 26. maí 1806.
Jón, f. 10. okt. 1808.


Heimildir