Ingigerður Árnadóttir (Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. nóvember 2006 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. nóvember 2006 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Bætti við nafn höfundar.)
Fara í flakk Fara í leit

Ingigerður Árnadóttir húsfreyja, ljósmóðir í Dölum og Nýjabæ, f. um 1764 að Lækjarbakka í Mýrdal, d. 20. maí 1833 í Nýjabæ í Eyjum. Foreldrar hennar voru Árni bóndi að Lækjarbakka, f. 1722, Jóns bónda á s.st. Árnasonar og ónefnd móðir.

Ingigerður var komin til Eyja 1801 og var þá húsfreyja í Dölum. Hún nam ekki ljósmóðurfræði svo vitað sé. Hún gegndi ljósmóðurstörfum í Eyjum 1805-1812 og naut launa úr konungssjóði.

Maki I: Ögmundur bóndi á Hvoli í Mýrdal 1777, f. 1751, d. 16. febr. 1793, Björnsson bónda á Hvoli í Mýrdal. Hann mun vera af sömu ætt og Ögmundur Árnason frá Kerlingardal í Mýrdal, faðir þeirra Jóns í Stakkagerði og síðar í Dalbæ, Ögmundar í Landakoti og Arnbjarnar í Presthúsum.
Börn :1) Oddur, f. um 1787; Kristín, f. um 1788.

Maki II: (1792): Árni Hákonarson bóndi í Stóra-Gerði, f. um 1741, drukknaði 16. febr. 1793. Barn: Þorbjörg, f. 14. apríl 1793, d. 20. s. mán.

Maki III (6. des. 1798): Jón Einarsson útvegsbóndi, lóðs- og hreppstjóri, f. um 1773 á Búastöðum, d. 14. marz 1846, líklega að Miðhúsum. Þau Ingigerður eru búsett í Dölum 1801, en í Nýjabæ 1816. Jón er ekkill að Miðhúsum 1845. Börn: Kristín, f. 9. jan. 1803, d. 17. sama mánaðar úr ginklofa; Einar, f. 4. jan. 1804, d. 13. sama mánaðar úr ginklofa; Kristín, f. 13. maí 1806, d. 26. maí 1806; Jón, f. 10. okt. 1808.


Heimildir

  • Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ljósmæður á Íslandi. Rvk 1984.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja I. Reykjavík: 1946. bls. 149.
  • Sigfús M. Johnsen. Blik 1960, bls. 110-112.
  • Vestur-Skaftfellingar.