Hjörtur Einarsson (Geithálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. mars 2013 kl. 11:15 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. mars 2013 kl. 11:15 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Hjörtur Einarsson færð á Hjörtur Einarsson (Geithálsi))
Fara í flakk Fara í leit
Hjörtur, Katrín og börn.

Hjörtur Einarsson, Geithálsi, fæddist 19. ágúst 1887 að Þorlaugargerði í Vestmannaeyjum og lést 30. desember 1975. Foreldrar hans voru Einar Sveinsson og Guðríður Helgadóttir.

Eiginkona Hjartar var Katrín Sveinbjarnardóttir og bjuggu þau á Geithálsi við Herjólfsgötu.

Formennsku hóf Hjörtur árið 1912 á Frið og var formaður þar til 1919 en þá lét hann af formennsku. Eftir það var hann vélamaður í fjölda vertíða.

Hjörtur bjó á elliheimilinu Skálholti við Urðaveg seinni árin.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.