„Helgi Benónýsson (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 26. nóvember 2018 kl. 19:51

Helgi og Nanna.

Helgi Björgvin Benónýsson fæddist 23. apríl aldamótaárið 1900 og lést 19. ágúst 1985. Foreldrar hans voru Benóný Helgason og Guðný Magnúsdóttir. Helgi ólst upp í Skorradal en flutti til Vestmannaeyja þegar hann var 28 ára. Þá hafði hann haft ýmsa starfa og gengið á búnaðarskóla.

Eiginkona Helga var Nanna Magnúsdóttir.

Helgi var mikill athafnamaður á sviði landbúnaðar og jarðræktar í Vestmannaeyjum en einnig var hann með talsverð umsvif í útgerð. Hann bjó að Vesturhúsum og var oft kenndur við heimili sitt, Helgi á Vesturhúsum, en einnig fékk hann annað viðurnefni, var oft kallaður Helgi vindill og var ástæðan sú að hann var mikill vindlareykingamaður og sást helst ekki öðru vísi en með vindil uppi í sér.

Myndir


Heimildir