Helga Ólafsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. febrúar 2014 kl. 21:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. febrúar 2014 kl. 21:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: Helga Ólafsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 1793 og lést 27. mars 1840.<br> Uppruni er ókunnur.<br> Hún var ógift vinnukona á Ofanleiti 1816, orðin húsfreyja á Kirkju...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helga Ólafsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 1793 og lést 27. mars 1840.
Uppruni er ókunnur.
Hún var ógift vinnukona á Ofanleiti 1816, orðin húsfreyja á Kirkjubæ 1822.
Þar ól hún 14 börn, en aðeins tvö lifðu í þessu ríki stífkrampabakteríunnar (ginklofans).
Helga lést 1840, 41 árs gömul.
Maður hennar (1. október 1822), var Ólafur Guðmundsson bóndi og smiður á Kirkjubæ, f. 17. janúar 1798, d. 14. júlí 1869.
Börn þeirra voru:
1. Guðmundur Ólafsson, f. 30. nóvember 1822, d. 8. desember 1822 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
2. Steinunn Ólafsdóttir, f. 1. nóvember 1823, d. 7. nóvember 1823 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
3. Höskuldur Ólafsson, f. 14. mars 1825, d. 17. mars 1825 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
4. Helgi Ólafsson, f. 7. janúar 1827, d. 15. janúar 1827, d. 8 daga gamall úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
5. Böðvar Ólafsson, f. 9. október 1828, tvíburi, d. 19. október 1828.
6. Margrét Ólafsdóttir, f. 9. október 1828, tvíburi, d. 10. mars 1875.
7. Helgi Ólafsson, f. 17. desember 1829, d. sama dag úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
8. Guðrún Ólafsdóttir, f. 13. desember 1830, d. 19. desember 1830 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
9. Sveinn Ólafsson, f. 16. desember 1831, d. 22. desember 1831 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
10. Gróa Ólafsdóttir, f. 1. júlí 1833, d. 8. júlí 1833 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
11. Anna Ólafsdóttir, f. 6. ágúst 1834, d. 10. ágúst 1834 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi)..
12. Davíð Ólafsson húsmaður á Gemlufalli í Dýrafirði, f. 12. apríl 1836, d. 10. mars 1875.
13. Andvana piltbarn, f. 19. október 1837, tvíburi.
14. Ingibjörg Ólafsdóttir, f. 19. október 1837, tvíburi, d. 21. febrúar 1838, 18 vikna „af ginklofa“.


Heimildir