Halla Jónsdóttir (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. febrúar 2017 kl. 14:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. febrúar 2017 kl. 14:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Halla Jónsdóttir''' frá Dölum, húsfreyja fæddist 6. september 1886 og lést 29. nóvember 1918.<br> Foreldrar hennar voru [[Jón Gunnsteinsson (Dölum)|Jón Gunnste...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Halla Jónsdóttir frá Dölum, húsfreyja fæddist 6. september 1886 og lést 29. nóvember 1918.
Foreldrar hennar voru Jón Gunnsteinsson bóndi, útvegsmaður og söðlasmiður í Dölum, f. 10. desember 1844, d. 19. júlí 1924, og síðari kona hans Þorgerður Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 4. júní 1855 að Ketilsstöðum Mýrdal, d. 2. mars 1939.

Börn Jóns Gunnsteinssonar af fyrra hjónabandi hans:
1. Guðjón Jónsson verslunarþjónn í Vík, f. 7. febrúar 1875, d. 26. maí 1942.
2. Jóhannes Gunnar Jónsson, bóndi í Suður-Hvammi í Mýrdal, f. 8. febrúar 1876, d. 10. októbr 1905 í Suður-Hvammi.
3. Sigríður Hildur Jónsdóttir, f. 18. júlí 1877, d. 25. júlí 1877.
4. Sigríður Jónsdóttir, f. 18. október 1878, dó 1878, grafin 10. nóvember.
5. Jón Jónsson á Bólstað í Mýrdal, f. 27. apríl 1881, drukknaði 30. júlí 1901.

Börn Jóns og Þorgerðar Hjálmarsdóttur:
1. Halldór Jónsson, f. 24. maí 1884, d. 30. maí 1884.
2. Halldór Jónsson, f. 26. júlí 1885, d. 6. ágúst 1885.
3. Halla húsfreyja, f. 6. september 1886, d. 29. nóvember 1918, gift fyrr, (skildu), Brynjólfi Stefánssyni kaupmanni, f. 14. febrúar 1881, d. 18. desember 1947. Síðari maður hennar var Guðlaugur Brynjólfsson formaður og útgerðarmaður, f. 23. júlí 1890, d. 30. desember 1972. Halla var fyrri kona hans.
4. Kristján skósmiður, sjómaður, f. 12. apríl 1888, d. 21. mars 1922, kvæntur Guðnýju Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 29. mars 1890, d. 25. desember 1985. Kristján tók út af Sigríði VE-240 fyrir innan Eyjar.
5. Sveinbjörn rafveitustjóri, f. 16. mars 1889, d. 6. apríl 1930, kvæntur Tómasínu Eiríksdóttur

Halla var með foreldrum sínum á Bólstað í Mýrdal til 1904 og fluttist með þeim til Eyja.
Hún giftist Brynjólfi 1905 og bjó á Velli. Þau byggðu Bólstað við Heimagötu 18, eignuðust Jóhannes Brynjólf 1907, en hann dó í Bólstað 32 vikna gamall.
Þau eignuðust annan Jóhannes Brynjólf 1908, en skildu skömmu síðar.
Halla var með Jóhannes son sinn í vinnumennsku á Tjönum u. Eyjafjöllum 1910.
Hún bjó með Guðlaugi í Odda 1913, kona hans þar 1914 og 1915, fæddi andvana barn þar 1915, var með syni sína Sveinbjörn Óskar og Jóhannes þar 1916-1917.
Hún ól Höllu Bergsteinu 1918 og lést rúmum 3 vikum síðar.

I. Fyrri maður Höllu, (31. maí 1905, skildu), var Brynjólfur Stefánsson skósmiður, síðar kaupmaður, f. 14. febrúar 1881, d. 18. desember 1947.
Barn þeirra var
1. Jóhannes Gunnar Brynjólfsson, f. 1907, d. 23. nóvember 1907, 32 vikna gamall.
2. Jóhannes Gunnar Brynjólfsson forstjóri, f. 20. september 1908, d. 27. maí 1973.

II. Síðari maður Höllu, (1914), var Guðlaugur Brynjólfsson formaður og útgerðarmaður, f. 23. júlí 1890, d. 30. desember 1972. Halla var fyrri kona hans.
Börn þeirra voru:
1. Sveinbjörn Óskar Guðlaugsson verslunarstjóri, fiskimatsmaður, f. 4. febrúar 1914 í Odda, d. 6. maí 1994.
2. Andvana drengur, f. 28. október 1915 í Odda.
3. Halla Bergsteina Guðlaugsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 5. nóvember 1918 í Odda, d. 17. ágúst 1997.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.