Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:33 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:33 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Háhá séð innan úr Herjólfsdal.

Háhá, eða Há-há, er klettur sem stendur vestast á því fjalli sem kallað er Háin. „“ er þó réttara notað sem heildarheiti yfir allt fjallið sem stendur austan við Herjólfsdal. Há-há er, eins og nafnið bendir til, hæsti hluti fjallsins, en hann stendur um 220m yfir sjávarmál. Þar er fánastöng sem er gjarnan flaggað á við hátíðleg tækifæri, og er jafnframt spotti bundinn milli þeirrar fánastangar og annarrar eins á Blátindi yfir Þjóðhátíð, og skraut hengt þar á milli.

Háin er þverhnípt að vestan, en uppgangur er auðveldur að austan.

Efsti punktur Hánnar heitir Moldi. Á flatlendinu austur og niður af Molda er Háin eða Austurhá. Á Hánni er, eins og allir eyjakrakkar vita, heimili jólasveinanna, þaðan koma þeir til byggða á þrettándanum og kveðja jólin með öðrum Eyjamönnum, áður en þeir halda aftur heim, fram að næstu jólum.