Gylfi Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2006 kl. 11:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2006 kl. 11:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (stytti framætt maka.)
Fara í flakk Fara í leit

Gylfi Sigfússon framkvæmdastjóri fæddist 23. febr. 1961 í Eyjum. Foreldrar: Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930 og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.
Gylfi varð viðkiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1990.
Hann var framkvæmdastjóri Tollvörugeymslunnar 1990-96, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Ambrosio Shipping Co. í USA 1996-2001 og sölu- og markaðssviðs Eimskips í USA frá 2001. (2004).
Maki: Hildur Hauksdóttir húsmóðir, flugfreyja og viðskiptafræðingur í USA, framkvæmdastjóri fyrirtækisins „Shop USA“, f. 13. ágúst 1965.
Foreldrar: Haukur Leósson Fossberg endurskoðandi og skrifstofustjóri, f. 1937 og k.h. Ragnhildur Aronsdóttir húsmóðir og sjúkraliði, f. 1942, d. 1996.
Börn: Gylfi Aron, f. 9. okt. 1986; Alexander Aron, f. 18. nóv. 1990.

Heimildir:

  • Pers.