Guðrún Ragnhildur Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. janúar 2022 kl. 14:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. janúar 2022 kl. 14:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Ragnhildur Guðmundsdóttir''' frá Kerlingardal í Mýrdal, bústýra í Reykjavík fæddist 17. janúar 1906 í Kerlingardal og lést 12. nóvember 1984.<br> Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson tómthúsmaður og skósmiður í Vík í Mýrdal, f. 27. febrúar 1883 í Ytri-Skógum u. A.-Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1964, og kona hans Egillína Sigríður Jónsdóttir (Egilsína í pr.þj. bók), húsfreyja, f. 10. október 1886 í Kerlingardal, d. 7. m...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ragnhildur Guðmundsdóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, bústýra í Reykjavík fæddist 17. janúar 1906 í Kerlingardal og lést 12. nóvember 1984.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson tómthúsmaður og skósmiður í Vík í Mýrdal, f. 27. febrúar 1883 í Ytri-Skógum u. A.-Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1964, og kona hans Egillína Sigríður Jónsdóttir (Egilsína í pr.þj. bók), húsfreyja, f. 10. október 1886 í Kerlingardal, d. 7. mars 1934.

Guðrún var með foreldrum sínum í Kerlingardal til 1907, var tökubarn á Snæbýli í Skaftártungu 1909-1915, í Hlíð þar 1915-1916, á Borgarfelli 1916-1917, var fósturbarn í Vík 1917, tökubarn í Húsi Símonar 1920, var í Eyjum 1929, í Vík til 1941, síðar bústýra í Reykjavík.
Guðrún Ragnhildur átti barn með Gesti Gíslasyni 1907. Hún átti barn með Steindóri Guðmundssyni 1931.
Hún átti barn með Haraldi Jónssyni 1944.
Guðrún Ragnhildur bjó síðast á Laugavegi 155. Hún lést 1984.

I. Barnsfaðir Guðrúnar var Gestur Gíslason frá Suður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, trésmiður í Reykjavík, f. 26. júlí 1906, d. 4. ágúst 1994.
Barn þeirra:
1. Guðni Óskar Gestsson bifvélavirki, vörubílstjóri, f. 28. janúar 1929 í Stakkholti, d. 4. maí 2017.

II. Barnsfaðir Guðrúnar var Steindór Guðmundsson bifreiðastjóri á Stokkseyri, f. 11. nóvember 1904, d. 29. júní 1959.
Barn þeirra:
2. Sigurgeir Steindórsson, f. 22. nóvember 1931, d. 13. janúar 1940.

III. Sambúðarmaður Guðrúnar Ragnhildar var Haraldur Jónsson prentari í Reykjavík, f. 18. júní 1888, d. 9. september 1977.
Barn þeirra:
3. Karítas Haraldsdóttir, f. 8. janúar 1944.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.