Guðrún Jónsdóttir (Görðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónsdóttir vinnukona, síðar í Vesturheimi, fæddist 20. maí 1876 og lést 30. mars 1934.
Foreldrar hennar voru Jón Árnason bóndi, meðhjálpari, f. 19. júní 1840 á Dyrhólum í Mýrdal, d. 10. nóvember 1908 í Eyjarhólum þar, og kona hans Guðríður Eyjólfsdóttir frá Steig í Mýrdal, húsfreyja, f. 9. júlí 1842, d. 17. maí 1924 í Vík.

Börn Guðríðar og Jóns,- í Eyjum voru:
1. Friðrik Jónsson á Látrum, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 7. desember 1868, d. 29. október 1940.
2. Árni Jónsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 5. maí 1874, d. 8. ágúst 1954.
3. Guðrún Jónsdóttir vinnukona, síðar í Vesturheimi, f. 20. maí 1876, d. 30. mars 1934.
4. Þorsteinn Jónsson sjómaður, f. 1. september 1877.
5. Ólafur Jónsson á Landamótum, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 4. nóvember 1883, drukknaði 5. janúar 1916.

Guðrún var með foreldrum sínum í Suður-Hvammi í Mýrdal til 1883, í Eyjarhólum þar 1883-1904, var vinnukona þar 1904-1909.
Hún fór til Eyja 1909, var vinnukona í Görðum til 1912, er hún flutti til Vesturheims, var húsfreyja í Mikley í Winnipegvatni í Kanada.
Þau Þorvarður giftu sig, voru bændur í Mikley.
Guðrún lést 1934 og Þorvarður 1916.

I. Maður Guðrúnar var Þorvarður Ólafsson frá Eystri-Dalbæ í Landbroti, bóndi í Mikley, f. 13. júní 1884, d. 13. júlí 1916. Foreldrar hans voru Ólafur Þórarinsson bóndi, f. 3. maí 1848 á Seljalandi í Fljótshverfi, d. 22. nóvember 1912 á Fossi á Síðu, og kona hans Málfríður Jónsdóttir frá Kirkjubæjarklaustri, húsfreyja, f. þar 25. apríl 1850, d. 7. ágúst 1937 á Hörgslandi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.