„Guðný Helga Guðmundsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Guðný Helga Guðmundsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 6. desember 2021 kl. 11:45

Guðný Helga Guðmundsdóttir löggiltur endurskoðandi fæddist 22. nóv. 1968 í Eyjum og lést 5. september 2020.
Foreldrar hennar eru Guðmundur Helgi Guðjónsson bifvélavirkjameistari , f. 1947 og k.h. Inga Dóra Þorsteinsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 1946.

Guðný var launamálafulltrúi í Fjármálaráðuneytinu 1988-1992, varð cand.oecon.- viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1996, vann við endurskoðun hjá KPMG frá 1996, varð löggiltur endurskoðandi haustið 2005.
Maki Guðnýjar er Friðrik Björgvinsson lögfræðingur, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, f. 3. marz 1961 á Akranesi. Foreldrar hans eru Björgvin Sævar Hjaltason verkamaður og leiðbeinandi, f. 1933, d. 2015, og k.h. (skildu) Daisy Edda Karlsdóttir framreiðslukona, f. 1932.
Hjalti afi Friðriks og Jón Benónýsson (Jón Ben) voru bræður.

Börn:

  1. Andri, f. 14. nóvember 1990 í Rvk.
  2. Gunnar Helgi, f. 18. maí 1993 í Rvk.
  3. Alexander Elvar, f. 13. febrúar 1999 í Rvk.
  4. Kristófer Máni, f. 13. febrúar 1999 í Rvk.



Heimildir

  • Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
  • Borgfirzkar æviskrár. Akranesi: Sögufélag Borgarfjarðar, 1969-2003.
  • Pers.
  • Þorsteinn Jónsson: Klingenbergsætt. Reykjavík: Þjóðsaga, 1991-1993.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.