Grímur Bessason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 13:55 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 13:55 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Grímur Bessason, 1745 til 1748. Hann var fæddur 1719. Sonur Bessa Árnasonar að Hrafnkelsstöðum og konu hans Guðrúnar Þórðardóttur. Varð stúdent frá Skálholtsskóla 1741, síðar djákn að Skriðuklaustri og í þjónustu Þorsteins sýslumanns Sigurðssonar á Víðivöllum, en vígðist að Ofanleiti 1745, en hélt því embætti í aðeins þrjú ár, eða þar til hann fékk Ás í Fellum og síðar Hjaltastaði í Útmannasveit, sem hann hélt til æviloka. Hann var talinn gáfumaður og kennimaður góður þegar hann vildi við hafa og skáldmæltur vel. Kona hans var Oddný Árnadóttir, lögréttumanns á Arnheiðarstöðum og áttu þau tvo syni, sem upp komust. Hann andaðist 1785.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930