Finnbogi Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 10:11 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 10:11 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Finnbogi í Vallartúni.

Finnbogi Finnbogason, Vallartúni, fæddist að Pétursborg í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891 og lést 3. mars 1979. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir].

Finnbogi byrjaði sjómennsku ungur á Neptúnusi I og var hjá honum margar vertíðir. Formennsku byrjar Finnbogi árið 1915 á Stefni en síðar var hann með Láru, Ásdísi og Þór til ársloka 1923. Eftir það var hann formaður fyrir Ólaf Auðunsson útgerðarmann með hina ýmsu báta fram til 1940.

Benedikt Sæmundsson vélstjóri frá Fagrafelli í Vestmannaeyjum samdi kvæði um Finnboga. Við birtum hér fyrstu tvö erindin af sex:

Þú varst ekta Eyjamaður
allt þitt líf og starf var þar
fórst á sjóinn, ferðahraður,
formannsbragur á þér var.
Um það var víst alltaf friður
að þú gengir þessa slóð
selta hafs og sjávarniður
samofið í hold og blóð.


Mikil reisn var ávallt yfir
öllum þínum formannsbrag
í huga mínum lengi lifir
ljósið um það gæfu dag.
er eg kom, þá ungur maður,
á þinn fund, með bágan hag,
víst ég man, hve varð ég lgaður,
því, vel þú tókst mér, þennan dag.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1999.