„Eygló Björnsdóttir (Reykholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 15. júlí 2022 kl. 18:02

Eygló Björnsdóttir fæddist 19. október 1951 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Björn Kristjánsson og Guðbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka-vestri. Eygló er gift Friðriki Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn, Gunnlaugu Elísabetu, Björn og Jóhann. Eygló ólst upp á Urðavegi 15 (Reykholti eldra) og Bakkastíg 23 en eftir það bjó hún með manni sínum og börnum á Strembugötu.

Eygló lauk kennaraprófi 1971 og starfaði sem kennari í Barnaskóla Vestmannaeyja í fjölda mörg ár. Árið 2000 flutti Eygló og fjölskylda til Akureyrar og þar starfar Eygló sem dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri.