Erasmine Elisabeth Kemp (Godthaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2015 kl. 10:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2015 kl. 10:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja í Godthaab fæddist 1802.
Hún kom til Eyja frá Danmörku með tvö börn þeirra Christians 1834. Með henni komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.

Hjónin eignuðust 4 börn í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt barn 5 mánaða úr „krampa“, líklega ginklofi.
Christian Jakob verslunarstjóri lést 1839. Erasmine Elisabeth mun hafa flust frá Eyjum á því ári. Þá var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.

Maður Erasmine Elisabethar var Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab, f. 1802, d. 7. mars 1839.
Börn þeirra hér:
1. Gyrette Kemp, f. 1831.
2. Christian Kemp, f. 1832..
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederik Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, f. 8. október 1836, á lífi 1838.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.