Erasmine Elisabeth Kemp (Godthaab)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. febrúar 2015 kl. 13:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. febrúar 2015 kl. 13:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Erasmine Elisabeth Kemp''' húsfreyja í Godthaab fæddist 1802.<br> Hún kom til Eyja frá Danmörku með tvö börn þeirra Christians 1834. Með henni komu [[Madama Roed|An...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja í Godthaab fæddist 1802.
Hún kom til Eyja frá Danmörku með tvö börn þeirra Christians 1834. Með henni komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.
Hjónin eignuðust 4 börn í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt úr „krampa“, líklega ginklofi.
Þau munu hafa flust frá Eyjum 1839. Á því ári var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.

Maður Erasmine Elisabethar var Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab, f. 1802.
Börn þeirra hér:
1. Gyrette Kemp, f. 1831.
2. Christian Kemp, f. 1832..
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederik Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, f. 8. október 1836, á lífi 1838.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.


Heimildir