Elliði Vignisson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 16:55 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 16:55 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Elliði Vignisson bæjarstjóri

Elliði Vignisson er fæddur 28. apríl 1969. Eiginkona hans er Bertha Johansen kennari í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og eiga þau tvö börn, Nökkva Dan og Bjarteyju Bríeti.

Elliði er sálfræðingur að mennt og hefur undanfarin ár verið kennari við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Elliði var oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006 og var kosinn bæjarstjóri á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum 13. júní 2006.