Elísabet Arnoddsdóttir frá Gjábakka

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2012 kl. 13:50 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2012 kl. 13:50 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Elísabet Arnoddsdóttir fæddist 26. ágúst 1890 að Miðnesi og lést 22. febrúar 1951. Foreldrar hennar hétu Arnoddur Jónsson og Guðbjörg Jónsdóttir. Þau Arnoddur og Guðbjörg bjuggu ekki saman og skömmu eftir fæðingu var Elísabet tekin í fóstur til föður síns og hans konu, og var alin upp þar við mikið ástríki sem þeirra sameiginlegt barn væri.

Elísabet

Þann 17. desember 1909 giftist Elísabet Gunnlaugi Sigurðssyni. Þau bjuggu alla tíð á Gjábakka, sem var við Bakkastíg 17 og fór undir hraun 1973.

Synir þeirra voru Arnoddur, Gunnlaugur, Friðrik Þórarinn, Jón, Elías og Ingvar. Dætur þeirra voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný.