„Einar Guttormsson (læknir)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(14 millibreytingar ekki sýndar frá 8 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''Einar Guttormsson''' var sjúkrahúslæknir 1934 til 1973. Hann er fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddsonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna eldgossins á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja. Tók mikinn þátt í félagsmálum í Eyjum. Átti sæti í bæjarstórn 1946 til 1950 og var gerður heiðursborgari Vestmannaeyjakaupstaðar og létu bæjarbúar gera af honum brjóstlíkan á 25 ára starfsafmæli hans, og er það í hinu nýja sjúkrahúsi staðarins. Hann var talinn skurðlæknir með afbrigðum góður og almennt mjög vinsæll sem læknir. Kona hans er Margrét Kristín Pétursdóttir verkamanns á Akureyri Jónatanssonar og eiga þau fimm börn.
[[Mynd:EinarGuttormsson.jpg|thumb|250px|Einar Guttormsson]]
'''Einar Guttormsson''' var sjúkrahúslæknir frá 1934 til 1973. Hann var fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal og lést 12. febrúar 1985. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddssonar. Samfeðra Einari var [[Guðlaugur Guttormsson|Guðlaugur]] hænsnabóndi á [[Lyngfell]]i.


Kona Einars var [[Margrét Pétursdóttir (Sólvöllum)|Margrét Kristín Pétursdóttir]] verkamanns, formanns, netagerðarmanns á Akureyri Jónatanssonar og áttu þau fimm börn.


== Heimildir ==
Einar útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna [[Heimaeyjargosið|eldgossins]] á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja.
*''Eyjar gegnum aldirnar'' Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930


Einar tók mikinn þátt í félagsmálum í Eyjum og átti t.a.m. sæti í [[bæjarstjórn]] frá árinu 1946 til 1950. Einar var gerður að [[Heiðursborgari|heiðursborgara]] Vestmannaeyjakaupstaðar árið 1969 og létu bæjarbúar gera af honum brjóstlíkan á 25 ára starfsafmæli hans. Styttan stendur uppi í [[Sjúkrahús Vestmannaeyja|Sjúkrahúsi Vestmannaeyja]]. Hann var talinn afburða skurðlæknir og almennt mjög vinsæll sem læknir.
{{Heimildir|
* [[Guðlaugur Gíslason]]: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
[[Flokkur:Bæjarfulltrúar]]
[[Flokkur:Læknar]]
[[Flokkur:Læknar]]
[[Flokkur:Heiðursborgarar]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]

Núverandi breyting frá og með 27. júní 2023 kl. 20:08

Einar Guttormsson

Einar Guttormsson var sjúkrahúslæknir frá 1934 til 1973. Hann var fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal og lést 12. febrúar 1985. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddssonar. Samfeðra Einari var Guðlaugur hænsnabóndi á Lyngfelli.

Kona Einars var Margrét Kristín Pétursdóttir verkamanns, formanns, netagerðarmanns á Akureyri Jónatanssonar og áttu þau fimm börn.

Einar útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna eldgossins á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja.

Einar tók mikinn þátt í félagsmálum í Eyjum og átti t.a.m. sæti í bæjarstjórn frá árinu 1946 til 1950. Einar var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjakaupstaðar árið 1969 og létu bæjarbúar gera af honum brjóstlíkan á 25 ára starfsafmæli hans. Styttan stendur uppi í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Hann var talinn afburða skurðlæknir og almennt mjög vinsæll sem læknir.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.