Bunki

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 21:22 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 21:22 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Á miðri Elliðaey standa tveir um 10.000 ára gamlir gjallgígar sem nefnast sameiginlega Bunki. Bunki er aflangur frá norðri til suðurs, en gígarnir tveir kallast Bunkalágar. Er nyrðri hæðin kölluð Stóri-Bunki en hin syðri Litli-Bunki.

Í Bjarnarey er einnig sama örnefni, Bunki, og er það hæsti hluti eyjarinnar, fornt eldvarp, grasi vaxið, með skál í kollinum er kallast Bunkalág rétt eins og í Elliðaey.