„Blik 1938, 1. tbl./Eg sigli burt“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Blik 1938, 1.tbl./Eg sigli burt“ [edit=sysop:move=sysop])
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 4. október 2009 kl. 15:14

Helgi Sæmundsson:
EG SIGLI BURT.
Yfir sundin sumarblá
sigli ég frá ströndum.
Legg á höf með bros á brá.
Blæs í seglum þöndum.
Svala minni þyrstu þrá,
þeirri, sem ég dýpsta á.
— Stefni burt í leit að nýjum löndum.
Bláan gyllir sólin sæ;
sumar er að völdum.
Sigli ég í blíðum blæ
burt — á hafsins öldum.
Ef ég ströndu nýrri næ,
njóta vökudrauma fæ,
á ég von á fjársjóð — áður földum.
Kveð ég land í þýðum þey;
þrái sjóðinn falda.
Eftir bíður bláeyg mey;
burtu samt skal halda.
Yfir djúpið flýt þér fley,
feigðarnöf þér grandar ei.
— Hverri voð í völdum byr skal tjalda!