Blik 1938, 1. tbl./Eg sigli burt
Fara í flakk
Fara í leit
- EG SIGLI BURT.
- Yfir sundin sumarblá
- sigli ég frá ströndum.
- Legg á höf með bros á brá.
- Blæs í seglum þöndum.
- Svala minni þyrstu þrá,
- þeirri, sem ég dýpsta á.
- — Stefni burt í leit að nýjum löndum.
- Yfir sundin sumarblá
- Bláan gyllir sólin sæ;
- sumar er að völdum.
- Sigli ég í blíðum blæ
- burt — á hafsins öldum.
- Ef ég ströndu nýrri næ,
- njóta vökudrauma fæ,
- á ég von á fjársjóð — áður földum.
- Bláan gyllir sólin sæ;
- Kveð ég land í þýðum þey;
- þrái sjóðinn falda.
- Eftir bíður bláeyg mey;
- burtu samt skal halda.
- Yfir djúpið flýt þér fley,
- feigðarnöf þér grandar ei.
- — Hverri voð í völdum byr skal tjalda!
- Kveð ég land í þýðum þey;