„Blik 1937, 1. tbl./Vilji nemendanna“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 17: Lína 17:
Í stjórn M. G. í Ve.<br>
Í stjórn M. G. í Ve.<br>


''Baldur Þorgilsson, Erla Ísleifsdóttir, Sigr.   Bjarnad.''
[[Baldur Þorgilsson|''Baldur Þorgilsson'']], [[Erla Ísleifsdóttir|''Erla Ísleifsdóttir'']], [[Sigríður Bjarnadóttir|''Sigr. Bjarnad.'']]

Útgáfa síðunnar 23. september 2009 kl. 12:48

Blik 1937, 1. tbl.

Vilji nemendanna.

Nemendur Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum gerðu með sér svofellda samþykkt á fundi sínum 21. febrúar s. l.
1. Nemendur skólans allir sem einn, vilja gera sitt fremsta til að efla starf skólans í framtíðinni, og hvetja unglinga til þess að sækja hann og rækja, þar sem þeir álíta hann í alla staði þess verðan.
2. Nemendunum er útgáfa skólablaðsins „Bliks“ metnaðarmál, og vilja gera allt, sem í þeirra valdi og mætti stendur til þess að hjálpa kennurum skólans til um útgáfu þess.
3. Nemendur álíta, að þeir, sem auglýsa í blaðinu, séu velgerðarmenn nemendafélagsins og skólans, þar sem þeir með auglýsingunum veita blaðinu fjárhagalegan stuðning. Nemendur tjá þessum mönnum bestu þakkir sínar og álykta, að þeir geti ekki á annan hátt betur endurgoldið þeim stuðninginn en að minnast velvilja þeirra eftir megni, þegar nemendur í orði eða verki geta haft áhrif á viðskipti heimila sinna.

Í stjórn M. G. í Ve.

Baldur Þorgilsson, Erla Ísleifsdóttir, Sigr. Bjarnad.