Blik

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. september 2006 kl. 13:28 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. september 2006 kl. 13:28 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Blik var tímarit málfundafélags Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Það var fyrst gefið út árið 1936 og hélt útgáfa þess áfram annað hvert ár þar til árið 1980.

Athafnamaðurinn og skólastjóri Gagnfræðaskólans, Þorsteinn Víglundsson, var stofnandi þess og ritstjóri og urðu árgangarnir alls 34. Hann lét af störfum sem skólastjóri árið 1963 og þar eftir tók að mestu við skrifunum í Blik. Þorsteinn var kosinn, einróma af bæjarstjórninni, heiðursborgari í Vestmannaeyjum árið 1978 fyrir framlag sitt til menningarmála.

Greinar

Greinar í Blik voru um menningarmál af fjölbreyttum toga en endurspegluðu þó áhugamál Þorsteins vel og í fyrstu tölublöðunum fékk Þorsteinn góða aðstoð frá nemendum sínum með skriftir. Greinarnar fjölluðu m.a. um einstaklinga, merka atburði, daglegt líf, atvinnumál, sögu, spaug og spé, bindindismál og efnisyfirlit byggðasafnsmuna.