Bjarni Jónsson (Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. ágúst 2014 kl. 11:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. ágúst 2014 kl. 11:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Bjarni Jónsson (Nýjabæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni Jónsson bóndi og meðhjálpari í Nýjabæ fæddist 1741 og drukknaði við Landeyjasand 12. nóvember 1793.

Bjarni var bóndi í Nýjabæ 1785 og meðhjálpari, bjó þar enn við andlát 1793.

Kona Bjarna var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1753, d. 12. febrúar 1817.
Börn þeirra hér, (fæðingaskrá hefst 1786, dánarskrá 1785):
1. Andvana fædd stúlka, grafin 19. nóvember 1785.
2. Anna Bjarnadóttir vinnukona, f. 22. maí 1787, d. 7. júní 1840.
3. Jón Bjarnason, f. 25. september 1791, d. 2. október 1791 úr ginklofa.


Heimildir