„Björn Jónsson (Bólstaðarhlíð)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Björn Jónsson. '''Björn Jónsson''' frá Bólstaðarhlíð, vélstjóri fæddist þar 3. nóvember 1950 og lést 18. nóvember 2023 á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað.<br> Foreldrar hans voru Jón Kristinn Björnsson bóndi í Bæ á Höfðaströnd og á Hellulandi í Hegranesi í Skagafirði, f. 22. desember 1928, d. 12. desember 2000, og fyrrum kona hans Perla Björnsdóttir (Bólstaðarhlíð)|Perla...)
 
m (Verndaði „Björn Jónsson (Bólstaðarhlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 3. desember 2023 kl. 18:58

Björn Jónsson.

Björn Jónsson frá Bólstaðarhlíð, vélstjóri fæddist þar 3. nóvember 1950 og lést 18. nóvember 2023 á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Foreldrar hans voru Jón Kristinn Björnsson bóndi í Bæ á Höfðaströnd og á Hellulandi í Hegranesi í Skagafirði, f. 22. desember 1928, d. 12. desember 2000, og fyrrum kona hans Perla Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð, húsfreyja, f. 11. ágúst 1928.

Björn lærði vélstjórn.
Hann vann lengst á sjó, en einnig í frystihúsi Kaupfélags Borgfirðinga í Borgarnesi.
Þau Björg giftu sig, eignuðust þrjú börn, en skildu.
Björn lést 2023.

I. Kona Björns, skildu, er Björg Sigríður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1954. Foreldrar hennar Óskar Jón Árnason Sigurðsson, f. 2. febrúar 1921, d. 19. október 1998, og kona hans Ragnheiður Guðmunda Guðmundsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 10. ágúst 1928, d. 23. september 1997.
Börn þeirra:
1. Auður Ragnheiður Björnsdóttir, f. 19. febrúar 1972.
2. Þóra Perla Björnsdóttir, f. 29. janúar 1976.
3. Óskar Björnsson, f. 5. október 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.