„Arnfríður Jónsdóttir (Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Arnfríður Jónsdóttir''' húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1807.
Faðir hennar var Jón sýslumaður í Eyjum 1801-18...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 15: Lína 15:

Maður Arnfríðar var [[Guðmundur Sigurðsson (Oddsstöðum)|Guðmundur Sigurðsson]] frá Skíðbakka í A-Landeyjum, bóndi og járnsmiður á Oddsstöðum 1840 , skírður 7. janúar 1798, d. 1. desember 1842. Hann var bróðir [[Magnús Sigurðsson (Háagarði)|Magnúsar Sigurðssonar]] bónda í [[Háigarður|Háagarði]], afa [[Magnús Guðmundsson (Hlíðarási)|Magnúsar í Hlíðarási]] og hálfbróðir, af sama föður, [[Sigurður Sigurðsson (Þorlaugargerði)|Sigurðar Sigurðssonar]] bónda í [[Þorlaugargerði]].

Þau Guðmundur áttu ekki börn, sem upp komust.

Börn þeirra Guðmundar hér. Þau komust ekki upp:

1. Sigríður Guðmundsdóttir, f. 7. apríl 1838.

2. Guðmundur Guðmundsson, f. 6. apríl 1839.

3. Ólafur Verner Guðmundsson, f. 12. maí 1840.

4. Eyjólfur Guðmundsson, f. 12. maí 1840.

{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Útgáfa síðunnar 18. október 2013 kl. 21:51

Arnfríður Jónsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1807.

Faðir hennar var Jón sýslumaður í Eyjum 1801-1812, f. um 1769, d. 22. apríl 1815, Þorleifsson alþingisskrifara og bónda í Ási í Holtum og víðar, f. 1732. d. 8. júlí 1805 í Eystri-Skógum u. Eyjafjöllum, Nikulássonar sýslumanns á Barkarstöðum í Fljótshlíð, f. 1700, drekkti sér í gjá (síðan nefnd Nikulásargjá) á Þingvöllum 25. júlí 1742, Magnússonar bónda á Hólum í Eyjafirði, f. 1657, Benediktssonar og konu Magnúsar, Ingibjargar húsfreyju, f. 1660, Þorkelsdóttur.
Móðir Þorleifs alþingisskrifara og kona Nikulásar sýslumanns var Rannveig húsfreyja, f. um 1708, d. 12. júlí 1785, Þorsteinsdóttir prests í Holti u. Eyjafjöllum, f. 1668, d. 1752, Oddssonar, og konu sr. Þorsteins, Kristínar húsfreyju, f. 1671, d. 1742, Grímsdóttur.
Móðir Jóns sýslumanns og fyrri kona Þorleifs alþingisskrifara var Guðrún húsfreyja, f. 1732, d. 1782, Jónsdóttir lögréttumanns á Stóra-Núpi í Gnúpverjahreppi, veiktist á geði á efri árum, f. um 1690, var á lífi 1755, Magnússonar bónda í Bræðratungu, („júngkærinn‟ í Bræðratungu), veiktist á geði, f. 1651, d. 8. mars 1707, Sigurðssonar, og annarrar konu Magnúsar í Bræðratungu, Þórdísar („Snæfríður‟, „hið ljósa man‟) húsfreyju í Bræðratungu, f. 1671, d. 1741, Jónsdóttur biskups á Hólum, Vigfússonar.

Móðir Arnfríðar á Oddsstöðum og síðari kona Jóns sýslumanns var Bóel Jensdóttir húsfreyja á Oddsstöðum, f. um 1783, d. 22. maí 1855.

Arnfríður var með ekkjunni móður sinni á Oddsstöðum 1816 og 1835.
Hún var gift húsfreyja á Oddsstöðum 1840, ekkja með ekkjunni móður sinni þar 1845 og 1850. Niðursetningur var hún á Búastöðum 1855 hjá Páli Jenssyni og Gróu Grímsdóttur og í Stakkagerði 1860 hjá Asdísi Jónsdóttur og Árna Diðrikssyni.
Samkvæmt þjóðsögum af henni varð hún veik á geði.
Sjá:
1. Úr fórum Árna Árnasonar. Verk hans og annarra/Frá Sigurði Breiðfjörð í Eyjum og
2. Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Sigurður Breiðfjörð og sýslumannsdóttirin

Maður Arnfríðar var Guðmundur Sigurðsson frá Skíðbakka í A-Landeyjum, bóndi og járnsmiður á Oddsstöðum 1840 , skírður 7. janúar 1798, d. 1. desember 1842. Hann var bróðir Magnúsar Sigurðssonar bónda í Háagarði, afa Magnúsar í Hlíðarási og hálfbróðir, af sama föður, Sigurðar Sigurðssonar bónda í Þorlaugargerði.

Heimildir