„Anna Daníelsdóttir (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Anna Daníelsdóttir (Kirkjubæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 15: | Lína 15: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Húsfreyjur]] | [[Flokkur: Húsfreyjur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] |
Útgáfa síðunnar 27. apríl 2015 kl. 20:04
Anna Daníelsdóttir húsfreyja fæddist 30. september 1856 á Kirkjubæ og lést 8. febrúar 1837 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Daníel Magnússon bóndi á Kirkjubæ, f. 1818, d. 15. desember 1869, og kona hans Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. desember 1830, d. 23. maí 1879.
Anna var með foreldrum sínum á Kirkjubæ nýfædd. Hún var eina barn þeirra, sem lifði frumbernskuna.
Þau fluttust frá Kirkjubæ að Þorlaugargerði 1857 og bjuggu þar meðan faðir hennar lifði.
1870 varð móðir hennar vinnukona í Jómsborg og Anna niðursetningur, 1972 og 1873 var hún þar með móður sinni.
Hún var „léttakind“ í Fagurlyst 1874, „léttakind“ í Vanangri 1875, vinnukona í Jómsborg með móður sinni 1876-1878, er hún fluttist til lands með henni, sögð fara að Álfhólum í V-Landeyjum. Hún var vinnukona í Ormskoti u. Eyjafjöllum 1880.
Anna var vinnukona í Tjarnarkoti á Reykjanesi 1890, lausakona í Reykjavík 1901, húsfreyja í Reykjavík 1910 og stundaði þjónustu og ýmsa vinnu 1920.
Hún dvaldi að síðustu á Elliheimilinu Grund í Reykjavík.
Anna Daníelsdóttir giftist ekki, en mun hafa átt einn son, sem aðstoðaði hana fjárhagslega 1910.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.